Ampop - Clown
Jæja, langt og lengi hef ég ekki bloggað, en verður hér smá breyting á, því hér kemur ný færsla í gagnið, sem er ekki tilgangurinn í að skemmta ykkur heldur aðeins að stytta tíman minn. Því ég er svo æðislegur.
Hérna sit ég fyrir framan tölvuna og er að raka mig, ekki eins og það skiptir miklu máli að ég skuli vera raka mig, því hárin á mér eru alveg hvít, nema sum eru byrjuð að dökkna... ekki sérlega flott það. Ég ætla bara nota þetta sem kvörtunar færslu, um þar að segja vinnurnar mínar, þó aðalega um 10 - 11, því leikskólinn, er jú, mun skemmtilegri vinna án efa.
Ég var að vinna um daginn og klukkan var orðin 23:56 og ég var farinn að hlakka til að komast heim, maður er byrjaður að taka saman draslið og ætlaði að drulla sér heim til þess að fara að sofa. En viti menn, hvað gerist, koma, hvað kærustupar/hjón/bólfélagar/vinir eða hvað sem þau voru, en þau voru greinilega alkar og dópistar, illalyktandi, ljótum fötum og einstaklega óhrein, einnig ljót, eða... falleg á sinn eigin hátt, einnig var konan klædd eins og 20 ára gella, hún var svona 50. En hvað um það, komu þarna inn, og anskotinn hafi það, þau voru labbandi framhjá kardimomudropunum vilt og galið, og held ég alveg að þau ætluðu að stela dropunum, allavega bjóst ég við því.
Síðan fór kallinn að tala við mig, og um hvað þjóðfélagið væri ömurlegt og hvað ríkisstjórnin var algjörlega gölluð og það þyrfti sko að taka þetta land í gegn. Ég sýndi þessum samræðum engan gaum enda var mér alveg sama um skoðanir þessa manns, en honum virtist ekki líka það vel að ég nennti ekki að tala við hann, en hvað um það. Þá kom loksins kona að kassanum með það sem hún ætlaði að kaupa... Það var hveiti, smjörlíki, og og 5 Kardimommudropar... 5 ! þú þarft ekki svona mikið til þess að baka vöflur, og þau voru ekki að fara að halda einhverja veislu... en síðan kom þessi setning sem ég bjóst aldrei við að heyra frá fólki, og í raun fyrsta skiptið sem ég heyri þessa setningu frá einstaklingi sem er ekki að grínast með þetta. "Ég er að fara að baka sko" jájá ég trúi þér alveg.
Síðan fór konan að tjá sig, kvöldið fer bara batnandi og batnandi... já þar, fór hún að segja hvað framhaldskólar voru lélegir, að þau skuli dirfast að hafa rekið hana. (Kannski var það ástæðan af hverju hún fór að drekka svona mikið, kannski var hún rekinn af því hún var alltaf full í vinnunni, hvað veit ég, ég vinn bara þarna) . Allavega þar fór hún að væla í mér, og þarna var ég bara búinn að missa þolinmæðina þannig ég fór að tala við hana á einhverjum nótum, var orðinn pirraður og þreyttur. Þannig ég svaraði fyrir mig, og spurði spurningar og benti henni á að skólinn hlyti að hafa haft löglega ástæðu til að reka hana, annars ætti hún að kynna sér rétt sinn, eina sem ég fékk á móti var það að ég ætti að leita mér sálfræðings, eða geðlæknis (jújú það er svo sem rétt, getur vel verið að ég eigi fara til geðlæknis, en eins og orðatiltækið segir... Kleppur er víða) og yfirvöld og skólinn væri illur.
Síðan náðum við loksins að reka þau út úr búðinni... þá var klukkan 00:20 og búðin lokaði 00:00 jájá þið getið bent á að þetta eru 20 min, en þetta voru án efa langar 20 min.
Jæja, fleiri sögur úr 10 - 11... Jæja þessi er ekki kvörtun, heldur er þetta frekar spaugilegt.
Jæja 2 ungir piltar komu, í feitari kanntinum, og virtist vera allt í góðu með þá, settu allt það sem þeir ætluðu að kaupa á borðið, allt í lagi með það, fólk gerir það vanalega þegar það ætlar að kaupa hluti. En síðan labbaði hinn í burtu og koma aftur eftir stutta stund og spurði.
"Má ég setja þessa klaka í boxin þarna í hliðin á ?" ég svaraði auðvitað játandi, því mér fannst það frekar augljóst. Síðan spurði hann aftur
"En hvað kosta þeir ?" Ég svaraði að þeir kostuðu 100 krónur, enda stóð það ekki við klakaboxin þannig hann gat ekki vitað það. En síðan kom toppurinn á kvöldinu.
"Má ég taka þá með mér heim ?" Þarna vildi ég svara neitandi og segja að hann þyrfti að kaupa þessa klaka en eftir að hann væri búinn að borga ætti hann setja þá í klakaboxið aftur, en eins og ég er, ekki mikill púki við þá sem ég þekki ekki sagði ég bara já þú mátt það.
Jæja á ég að hafa þessa færslu lengri ? nah nenni því ekki, kem örugglega með meira seinna =)
-Bikkus


3 Comments:
"að ég ætti að leita mér sálfræðings, eða geðlæknis".. hahaha ég hló upphátt þegar ég las þetta.. góð færsla
Awwww :') grey litli Bikki ;) hehe farðu vel með þig krútt :*
hehe ... þú og þín heppni :P hefði enginn getað lent í þessu nema þú :)
Post a Comment
<< Home