Kent - Den döde vinkeln
Heil og sæl, sit hér fyrir framan tölvuna, með ritstíflu og því ég sit fyrir framan tölvuna á ég í meiri hættu á að fá kransæðistíflu, þannig ég get sagt að ég sit hér fyrir framan tölvuna með rítstíflu og kransæðistíflu. Þannig heilinn er að halda partý og einnig líkaminn.
Ég er að pæla að hafa þetta svona leiðindablogg, þar að segja ætla ég að tala um hvað ég ætla að gera og hvað ég er búinn að vera gera, eða svona hversdagsblogg eins og ég vil kalla það. Það sem ég er búinn að gera get ég sagt í einni línu.
Ég er búinn að vera að vinna í leikskólanum og 10-11.
Já þá er það búið og wollah, nú vitið þið allt hvað ég er búinn að vera að gera seinustu 2 vikur, 2 thumbs upp for that. Enn allavega. Næsta partur af þessari hversdagsblogfærslu er sú að segja hvað ég er búinn að plana, sem er í sjálfu sér ekkert merkilegt, þannig þú getur alveg hoppað upp og sagt jei.
Ég fór í Nexus um daginn og ætlaði að kaupa uppistand með Eddie Izzard (nota bene er þetta líklegast fyndnasti maður á jarðríki) en því miður var allt uppselt hjá honum, þannig í staðinn keypti ég Arrested Develoment, sem er snilldar þættir, þættirnir eru illa steiktir, með aula húmor, þar að segja er svoldill auli, og með svoldinn húmor, þannig ég er með aulahúmor og þessi þættir henntar mér, og líka 2 uppistönd.
Síðan pantaði ég 3 uppistönd með honum viðfræga Eddie Izzard, þar að segja Dress to Kill... geðveikt uppistand, Circle... hef ekki séð, og Sexie... ekki séð heldur. En ég ætla að halda Eddie Izzard maraþon fyrir fólk sem ég þekki. Þessar 3 mynfir verða sýndar í þessari röð væntanlega:
Dress to Kill
Circle
Sexie
Þá ætla ég að kaupa mér kók, pizzu, snakk og fullt af nammi og plana að hlægja þangað til að ég verð kominn með krampa í lungun, like you do, og þetta verður haldið annaðhvort 25 eða 26 Mars.
Síðan ætla ég að plata pabba í verslunarleiðangur í BT, Elko og allar þessar raftækjaverslanir til að finna gott sjónvarp, ætla að gabba hann til að kaupa 40-42" LCD sjónvarp með HD tækninni, helst phillips, einnig heimabíó og DVD spilara ef það er ekki innifalið í heimabíóinu. Ætla að reyna að láta kaupa þetta sjónvarp áður Eddie Izzard marathon kemur, wich me luck :)
Chow
-Bikkus
Fann ekki textan úr þessu og nenni ekki að skrifa hann upp sjálfur :)


1 Comments:
good luck!!! :D
Post a Comment
<< Home