Jæja ég ætla að reyna að dunda mér við að nota ímyndunaraflið mitt eitthvað og búa til einhverja skáldsögu, veit ei hvað ég nenni að hafa þetta langt, þar að segja marga kafla, og mun ekki koma reglulega út :)
BTW , ekki móðgast þótt að ég kalli þetta hommarnir, I mean nothing bad about it =)
Kafli 1
“Opnaðu helvítis dyrnar drengur, hvað er að þér að sofa svona lengi á sunnudegi ?”
“Láttu mig vera fíflið þitt, ég er að reyna að sofa úr mér þynkuna mína anskotans hafi það !”
“Ójæja, þú ferð þá bara beint til helvítis ömurlega barn !”
Gat nú verið, þeir enn og aftur að rífast, þessir elskhugar, alltaf sama hjá þeim, það breytist ekki. Alltaf sama á sunnudögum, og breytist ekki neitt og mun ekkert breytast hingað til, skil ekki af hverju þeir eru enn saman, sífelt að rífast og kvarta og kveina við hvorn annan. En hvað með það, ég gleymdi að að kynna mig, ég heiti víst Bára, kölluð Burður, ekki spyrja, þetta nafn festist við mig þegar ég var í táningur, var þá alltaf að burðast með einhverja bækur út um allt, og þá var byrjað að kalla mig Burður, en hvað með það.
Þessi tveir elskhugar sem vekja vanalega heimilið heita Þriðrik Hreindal og hinn heitirÝrar Bernódus Móberg, eru kallaðir víst Þirri og Ýrbe, já ég veit, skrítin nöfn. En svo ég segi sannleikan um af hverju ég er stödd í þessu húsi hér með þessum vitleysingjum þá erum við 4 sem legjum saman, það er búið að vera mjög fínt og ég get svo sem ekki kvartað yfir því.
Jæja víst að ég var hvort sem er vöknuð ákvað ég að kíkja inná bað og skella mér í stykki sturtu. En hvernig ég kynntist þessum stráknum honum Þriðrik Hreindal það var fyrir um það bil 3 árum síðan sem ég hitti hann Þirri fyrst, hann var klæddur í þröngar gallabuxur, og var í einhverjum topp, með einhvern jakka yfir og með veski, eða réttara sagt svona handtusku... úr leðri. Sá hann vera að dansa við YMCA lagið í partýinu mínu, reyndar eini sem gerði það í partýinu, allir aðrir störðu bara á hann með stórum augum, og flestir strákarnir voru reyndar farnir einhvert annað. En hvað með það, til að gera raunar stutta sögu enn styttri þá byrjaði vináttan okkar uppfrá þessu, ég hafði loksins náð að uppfylla minn draum um að eignast samkynhneigðan vin.
Við 4 byrjuðum að legja saman fyrir um það bil 1 og hálfu ári síðan, við þekktumst öll mjög vel áður en við byrjuðum að legja saman, en hefur engu að síður verið mjög skrautlegt.
Anskotans síminn er að hringja...