Jæja, víst að þetta blogg mitt er byrjað að snúast bara um mig og mitt egóflipp þá held ég bara að ég ætli að halda áfram að skrifa svoleiðiss :)
Jæja ég verð víst að vinna næstum allar helga núna eftir af sumri jafnt sem fimmtudaga, eini alvöru fríhelgin mín mun vera þá verlunarmannahelgin og þá ætla ég að koma mér út úr borginni ef, ég fer ekki neitt, mun ég væntanlega vinna hana lengur. Já ég var svona mikill vinnualki þegar ég var að vinna í 10-11 en núna er það bara búið að versna, þannig að það verður enn minna um djamm hjá mér sem er eftir af sumrinu. Þannig það mætti segja að vinnan mín hefur aukist eftir að ég byrjaði á Glaumbar, fólk ætti því að hitta mig minna um helgar því að ég mun, tja vera sofandi meiri hlutan af laugardeginum :) og vinnandi um kvöldin. Má deila um hvort það er gott eða slæmt.
En ég get allavega verið kátur yfir einu, þessi vinna er miklu skemmtilegri heldur en helvítis 10-11, skemmtilegt fólk í vinnunni þarna, allavega virðist verta mjög almennilegt.
Síðan er ég að fara út eftir fáeina daga, bara núna sunnudaginn, og ég verð að vinna út helgina í leikskólanum, og siðan á fimmtudaginn föstudaginn og laugardaginn á glaumbar, svona mun helgarnar mínar einhvernveginn líta út hjá mér næsta 2 mánuði :) Svoldil mikill vinna þannig þið verðið bara að bare with me I guess, and call me crazy bastard.
En ég segi, sjáumst á djamminu ;) alltaf gaman að hitta eitthvað fólk sem maður þekki þegar maður er að vinna og ekki sakar þegar það er fullt, bara hagið ykkur vel annars er mér að mæta *urr* híhí :)