Allt að byrja að rúlla =)
Jæja, ég hef ekki bloggað í mánuð, eða kannski ætti ég að segja að ég hef ekki náð að koma með almennilega bloggflærslu í 34 daga, en hér kemur ein stór sem spannar yfir allt. ég ætla að byrja að skrifa allt niður hvað er búið að vera að gera og síðan setja lista yfir það =)
Þann 9 Júlí var lagt af stað í leiðangur til þess að hitta breska félaga minn sem ég kyntist þegar ég var 12 ára, annað hvert ár fer ég til hans og hann kemur síðan til Íslands annaðhvert ár, þetta hefur haldist núna út í um 9 ár og erum við hinir bestu mátar, eða ætti ég kannski að nota orðið "mates". Þegar ég kom þangað þá var glambandi sól, og í kringum 28 stiga hiti. Hitinn meðan ég var þarna var á daginn 25-33 stiga hiti og á nóttunni var það milli 15 og 26, sem er hræðilegur hiti til að reyna að sofa í.
Meirihlutan sem ég var þarna, eyddi ég þannig að gera ekki neitt, nema að sitja með einhvern drykk og horfa á sjónvarpið og hafa það rólegt, sem var alveg frábært af því ég þurfti á því að halda í rauninni. En þetta var meiri svona verslunarleiðangur hjá mér, eða svona stelpu leiðangur enda náði ég að toppavísakortið mitt, jafnst að toppa 60 þús í heimild. Það sem keypt var, Samsung gsm sími, DVD ferðaspilari 9 tommu, skór, hring, 2 armbönd, mat, bjór, sterktáfengi, gjafir.
Síðan kíktum við til Belgíu, við forum þá fyrst á ferja frá Bretlandseyjum til Frakklands og þaðan keyrðum við gegnum landið til Belgíu. Hitinn þar var óbærilegur, meðan við vorum þarna var 35 stiga hiti og ég fann bókstaflega húðina brenna. En þegar við fórum var sunnudagur og því allt lokað þannig að við löbbuðum um, fórum í bátsferð og fengum okkur að éta og fórum síðan aftur heim til Bretlandseyja.
Síðan er það sem hefði alveg mátt sleppa að gerast í ferðinni en það sem ég náði að áverka var að fá áfengiseitrun, við Alex fórum semsagt út að skemmta okkur með vinum hans, og fengið okkur bjóra á einum skemmtistað, síðan fórum við á einhvern klúbb, þegar ég fór að stað þá var ég með 110 pund í veskinu, og þegar ég vaknaði var ég bara með 60 pund, semsagt ég var búinn að eyða milli 40 -50 pund í áfengi 6800-7000 kall í áfengi þetta kvöld, til að nefna það þá kostaði vodka skot 1 1/2 pund og bjórinn líka. Ég var semsagt sendur uppí spítala og þar var ég gefið 2 stk af einhverju sem átti að hreinsa líkaman minn, og einnig var mér bannað að drekka í 2 vikur svo að lifrin min gæti jafnað sig.
En síðan kom ég heim og fór að vinna bara í glaumbar og svona.
En þá er það komið að verslunarmannahelginni. Það var ákveðið fyrir mig að ég átti að leiða hesta mína í eitthvað einkalandssvæði sem hann Binni á. Við lögðum af stað á föstudeigi klukkan um 7:30 -8 og komum á leiðaranga klukkan um 10, þá skelltu sér allir út og ákváðu að setja tjöldin í kring, þegar loksins var búið að tjalda öllum tjöldunum þá fóru allir og opnuðu sér bjór og þar var drukkið hóflega frameftir kvöldi og skemmt sér lengi vel. Það sama var uppá teningnum daginn eftir, þar var fyrst skroppið í sund og síðan komið aftur á tjaldsvæðið og skemmt sér langt fram eftir kvöldi. Daginn eftir var ákveðið að skella sér heim í bæinn og ákveðið að skella sér á djammið í reykjavík.
ég náði að...
...fara til bretlanda
...gera ekki neitt
...eyða 150 þús á 2 vikum
...borga skuldina mína við bankan á 1 mánuði
...komast á spítala í bretlandi
...næla mér í áfengiseitrun
...vinna
...vera ekki leyfilegt að drekka í 2 vikur
...vera í yfir 30 stiga hita og glampandi sól
...kynnast nýju fólki
...kynnast fólki sem ég kannaðist við betur
...skjóta á fólk
En ég held að ég hafi þetta ekki lengra í bili... en loka orðin mín verða þessi, Justin Timberlake - Sexy Back er klúbbatónlistarmálið þessa stundina :D

