Bikkus Dikkus

People call me Biggi, but my name is Batman.

Tuesday, September 19, 2006

Sit ég einn og sauma

Jæja, sit ég hér í góðum gír að hlusta á Justin Timberlike, og jafn með að reyna að dansa í stólnum mínum á meðan, sing this song for me! nei úps, gleymdi mér aðeins í söngnum :) En núna er ég búinn að vera veikur í 2 daga, reyndar varð ég örugglega veikur seinasta laugardag en það er annaðmál. Helgin mín var ágætt, var að vinna fimmt og föst, en fékk frí á laug og fór þá í partý hjá nödda og vöku en allir fóru heim klukkan um 2:30 þannig ég endaði einn en hitti fljótt fólk sem ég þekkti og var útúr súr samt restina af kvöldinu :)

Á sunnudeginum ákvað ég að skella mér í bláa lónið með glaumbar pakkinu og var það helvítis frískandi setti kísil á mig og alles og síðan ar það staffadjamm um kvöldið sem ég var edrú í, því ég bara meikaði ekki bjór útaf maganum á mér.

En nenni ekki blogga meira núna, vinna næstu helgi :)

Tuesday, September 05, 2006

What's heppening folks ?

Síðustu vikur hafa verið brjálaðar, Mikið að gera, en þessa helgi var eina fríhelgin mín í september og hún var nú bara skrambi góð, nema kannski laugardagurinn því ég var svo ógeðslega þreyttur eftir helvítiss föstudagurinn, en hann var bara tær snilld, en sunnudagurinn eyddi ég um 16 tímum af 24 að vera uppí rúmi og ekki sé ég eftir þeim pening verð ég að segja :)

En eins og er þá er ég að vinna eins og brjálæðingur, ég er að vinna 7 daga vikunnar og það er nú bara ágætt nema það að ég virðist geta eytt þessum pening sem ég vinn mér inn á engum tíma, og ekki spyrja mig hvernig ég fer að því, ég get greinilega ekki fariið með peningin minn rétt, en ég þarf að fara að fara að safna mér upp í eitt stykki íbúð víst, svo að ég komist einhverntíman út úr foreldrahúsum :) Safna bara svona milljón og þá er ég sneddý eins og einhver sagði við mig hér fyrir stuttu.

Tja, ég var að kaupa miða á Bloodhound Gang núna í dag og fera á hana á morgun, eða í dag þar sem þriðjudagur er kominn, anskoti er tíminn fljótur að líða =)

Tja jú, það er líklegast Danmerkur ferð hjá mér núna um jólin, síðan er tyrklandsferð um sumarið, ef allt gengur vel með það. Djöfull hlakka mér til.

Hlakka til að sjá ykkur fólk :)

Núna spilandi: Snow Patrol - Chasing Cars