Bikkus Dikkus

People call me Biggi, but my name is Batman.

Monday, November 20, 2006

Sögur úr bæjarlífinu.

Eins þið vitið flest hér sem koma hingað og heimsækja þessa stórskemmtilegu síðu um sjálfan mig þá vinn ég sem dyravörður og hef gert um nokkurt skeið, fín og skemmtileg vinna og ekki nenni ég að hætta í henni strax þótt að ég hef lent í böggi útaf henni, en hef þá minnkað vinnuna svo um munar. En allavega ég ætla að segja frá nokkru sem hefur gerst fyrir mig í þessari frábæru vinnu d=)

Ég ætla að byrja að kvarta um fólk sem ákveður að fara inná klósett til þess að æla, jæja flott hjá þeim að drífa sig inná klósett til að æla oní klósettið, eða allavega maður myndi halda það, en nei, fólkið ælir í staðinn í vaskinn, í ruslutunnuna, á gólfið, á veggina, i loftið og jafnvel oní pissuskálina... þótt að helvítiss klósettið var þarna rétt hjá, helvítis gerpi!

Síðasta laugardag var ég að vinna, og þá var ég búinn að þurfa að hafa annað auga með einhverri ljótri gellu, af því hún var bara búin að reyna að vera skapa slagsmál, búin að vera með gífurlegan kraft, kemur þessi ekki gella til mín alveg band brjáluð, var ný búin að vera öskra á einhvern strák, og öskraði á mig, "hann er bara 16 ára blablabla". Ég var bara ég skal sinna mínu starfi og þú skalt bara hætta að vera með kjaft og leiðindi hérna. Og byrjar þá ekki helvítis grýlan að tuða öskrandi, þannig ég sagði henni að drulla sér út, og kom þá þessi fleyga setning "Hentu mér út ef þú þorir" úúúúú núna er ég hræddur, en allavega ég hennti henni út en þegar við vorum komin niður að útidyrahurðinni, tók hún kókglas og reyndi að hella yfir mig, til allra hjálpar bjargaði annar dyravörður mér og einnig náði ég að "dodge-a" þetta þannig það fór ekkert í andlitið en á öxlina mína, tja ég var frekar pirraður.

Síðan um daginn vorum við að hennda einhverjum slagsmála hundi út, og þurftum að draga hann niður stigan af því hann var búinn að vera með mótþróa allan tíman og einnig þegar við vorum að taka hann niður stigan, þegar við erum loksins komnir niður með hann þá byrjar hann með enn meiri mótþróa þannig við þurftum að fara að halda honum niðri, og viti menn, náði ekki helvítis hálfvitinn að kýla mig rétt hjá gagnauganu, hef sjaldan veirð jafn reiður og þá.

Ég hef lent í svo miklu tuði þarna, að hálfaværi nóg, en svona er þetta, en eitt skipti þá lenti ég í sálgreiningu, sem var bara helvíti skemmtilegt, þessi stelpa gat nú bara alveg ágætlega hitt á naglan, þótt að það vantaði eitthvað, og sumt var rangt.

Jæja nenni ekki að hafa þetta lengra :)

4 Comments:

Blogger Steini said...

hættu á glaumbar.. !

21/11/06 21:57  
Anonymous Anonymous said...

Sammála seinasta ræðumann!
Hættu á glaumbar, farðu að djamma og hittu okkur oftar ;) :* we miss you!

22/11/06 20:02  
Anonymous Anonymous said...

Góð kvöld er æði og slæm kvöld er leiðinlegt þannig að þetta starf verður á endanum flatt.... en ekki hætta samt.. það er gamana að þekkja dyravörð "blikk blikk"

22/11/06 22:13  
Anonymous Anonymous said...

Gleðileg jól :D

24/12/06 21:34  

Post a Comment

<< Home