Klósett.
Tja, ég ætla nú aðeins að leyfa mér að kvarta hérna í þessari færslu minni, og umræðuefnið er, klósett. Svona frekar almennt um klósett, en mun líklegast tuða meira um klósettinn á skemmtistaðnum sem ég vinn.
En ég ætla samt að byrja á svona almennt. Það sem pirrar mig mest við er það þegar ég fer inná klósett sest niður, set mig í góðar stellingar til þess að fara að skíta og er jafnvel með eitthvað fyrir framan mig til þess að lesa (Það tekur mig stundum dágóðan tíma að skíta ef ég þarf þess virkilega). Og síðan kemur einhver og hamast á hurðinni alveg þangað til að ég er búinn, ég vil fá minn frið við að gera mínar þarfir úr afturendanum, takk fyrir.
Síðan er það líka annað, maður er kannski nýbúinn að kúka vænum lurk og með skitinn næstum upp á bak, þá snýr maður sér náttúrulega við til þess að sækja klósettpappír, nema eina helvítis vandamálið er það, að klósettpappírinn sé búinn og maður þarf að standa upp til þess að ná í nýja rúllu, þannig maður labbar að skápnum en þar er hann líka búinn. Þannig maður þarf að nota eldhúspappír eða eitthvað þaðan að verra, dagblöð.
Einhver sé með reglur að setja niður klósett skálmarnar (eða hvað sem það heitir)
Fljótandi kúkur sem maður getur ekki sturtað niður, hreint viðbjóðslegt.
Koma að klósetti sem er fullur af kúk, og lyktin er svo viðurstyggileg að maður þarf að halda í sé næstu 3 tímana, eða þá að banka uppá hjá nágranna og biðja auðmjúklega hvort maður gæti mögulega fengið að nota klósettið hans.
Almennings klósett.
Jæja, þá er ég búinn að tuða aðeins um klósett, en núna ætla ég að fara kvarta yfir klósettunum á glaumbar. Ætla ég að byrja að tala um kvennaklósettin
Ég ætla að byrja á því að undirstrika það, að þið, stelpur geta hreinlega ekki gengið vel um klósett þegar þær eru fullar, það er nær undantekningarlaust, að kvennaklósettið þarna er svona 2 til 3 sinnum verra heldur en karla, túrtappar liggjandi út um allt, pappír á gólfinu, sígarettur stubbar út um allt, oní vöskunum, og liggur við að það sé verið að reyna að troða þeim undir flísarnar. Síðan hvenar var svona erfitt að henda oní ruslið ? Það eru heilar 3 rusla tunnur á klósettinu
Síðan þegar maður þarf að skipta um klósettpappír þarna inni, allt í lagi, það kemur einhver gella upp að manni og segir “OMG shit sko, tjóljett pappír er búinn omg sko, skipta núna takk bæ”. Svo maður fer og og sækir klósettpappírinn og fer inná kvennaklósettið og fyrsta sem það er sagt við mann, “OMG, hvað ert þú að gera hér ? Perri”. Ég ansa “skipta um klósett pappír, hann skiptir sér ekki sjálfur”. Og þá stundum fær maður skrítna “lookið”. Ég nenni ekkert endilega vera að skipta, og hanga þarna inni þangað til að þið eruð búin að gera ykkar þarfir. Langar miklu frekar að vera standandi við dansgólfið að klápa á stelpurnar dansa. (ok ok þessi málsgrein er kannski ofurlítið ýkt)
Síðan að lokum, saumaklúbbar inná klósettinu.
Jæja þá ætla ég að snúa mér að karla, og það er spurning um hvar maður á að byrja.
Lyktin þarna inni er ógeðsleg, hún er samblanda af pissu, ælu og áfengis lykt. Það er varla líft að vera þarna inni, og það virðist aldrei breytast, skiptir ekki máli hversu mikið ilmspreyji maður notar, því hin lyktin kemur alltaf strax aftir.
Jæja þá ætla ég að snúa mér að því fólki sem ákveður að vera svo sniðugt að fara inná klósett til að æla, en málið er þegar þú ert kominn inná klósett þá er aðeins hálfur sigur unnin, því þú þarf að fara og æla oní klósettið, sem virðist vera voðalega mikið vandamál fyrir suma karlmenn. Það er ælt allstaðar annarsstaðar en oní klósettið, í ruslatunnuna, í pissuskálarnar, í vaskinn, veginn, eða gólfið. Allt í lagi, hér er staðreyndin, ef þið komist inná klósett, og það er læst inná klósett, þá skulið þið æla á gólfið og í versta falli oní ruslatunnuna, því maður getur tekið bokan úr ruslastunnuni, og maður getur notað moppuna fyrir gólfið. Því ef þið ælið oní vaskinn eða pissuskálarnar þurfum að drullast til að þvo þetta með anskotans höndunum.
Jæja þá er það sígarettustubbarnir, það er næstum alltaf heilir 4 öskubakkar inná karla klósettinu, 3 fyrir ofan pissuskárnar, 1 við vaskinn, það getur varla verið svo erfitt að henda stubbunum í öskubakkana í staðinn fyrir í pissuskálarnar, vaskana eða í gólfið er það ? Eða eruð þið karlmenn orðnir svona styrðir eftir að hafa rúnkað ykkur í hálfan daginn ?
Enn um pissuskálarnar, hvernig væri að að fara hitta onó þær staðinn fyrir framan til hliðar ? Þið eruð ekki með svona ógeðslega stóran að þið þurfið að standa 20 cm fyrir framan pissuskárnar ? Er það ? Það er ekki til svo mikil mælst að ætla að þið getið hitt ? Eða er ég bara orðinn svo fáranlega kröfuhaður ? Veistu nei held ekki.
Síðan er þetta eina klósett, ok, við skulum fá þetta á hreint, það er undantekning að einhverir strákar þurfa að nota það til þess að því var ætlað, kúka, pissa eða æla. Það er annaðhvort notað í að dópa, deyja, drekka drykki sem voru keyptir fyrir utan staðinn eða læsa og tala í síman. Farið einhvert annað ef þið ætlið að gera eitthvað af þessum 4. Takk takk
Jæja þá er ég búinn að kvarta nóg í kvöld og ætla að enda með því að segja eftirfarandi.
Núna nýlega þurfti ég að stoppa fólk í að ríða á klósettinu, hef sjaldan hlegið jafnmikið í vinnuni. :)
Labels: Kvörtun


2 Comments:
duuude.. frekar skrifa um fólkið sem var að ríða heldur en 4000 orð um klósettkúkæluogtúrtappa..
.. duuuude
"Það sem pirrar mig mest við er það þegar ég fer inná klósett sest niður, set mig í góðar stellingar til þess að fara að skíta og er jafnvel með eitthvað fyrir framan mig til þess að lesa (Það tekur mig stundum dágóðan tíma að skíta ef ég þarf þess virkilega). Og síðan kemur einhver og hamast á hurðinni alveg þangað til að ég er búinn, ég vil fá minn frið við að gera mínar þarfir úr afturendanum, takk fyrir."
Að taka sér góðan tíma í þetta er eitthvað sem maður ætti að venja sig á að gera heima hjá sér, æfa upp snögg-kúkið fyrir önnur tilefni, svosem í vinnu, samkvæmum eða fjölskylduboðum. (ókei, aðallega vinnunni þar sem það hefur áhrif á mig, haha ;))
"Síðan er það líka annað, maður er kannski nýbúinn að kúka vænum lurk og með skitinn næstum upp á bak, þá snýr maður sér náttúrulega við til þess að sækja klósettpappír, nema eina helvítis vandamálið er það, að klósettpappírinn sé búinn og maður þarf að standa upp til þess að ná í nýja rúllu, þannig maður labbar að skápnum en þar er hann líka búinn. Þannig maður þarf að nota eldhúspappír eða eitthvað þaðan að verra, dagblöð."
Einföld lausn á þessu er að leggja það í vana sinn að athuga klósettpappírs stöðuna áður en sest er á dolluna, smá fyrirhyggja er öllum holl.
"Einhver sé með reglur að setja niður klósett skálmarnar (eða hvað sem það heitir)"
Þetta heitir klósett seta, vegna þess að það er það sem þú tillir bossanum á til að auðvelda þér lífið við að gera þarfir þínar.
Annars finnst mér gott að sjá að þér er umhugað um aðstöðu þá er þú nýtir þér til úrgangslosunar, það ættu fleiri að láta sér þetta málefni varða.
Þakka gott hljóð.
-Steinunn Hóllinn
Post a Comment
<< Home