Lagalisti #1
Jæja, ætla að koma hér með svona, næstum vikulega, pistil um lög sem ég er að fýla, og getur þetta verið frá AC/DC í techno. Einnig ætla ætla ég að segja nokkrar setningar um lagið. Ef ég segi eitthvað fræðilegt þá getur það verið kolrangt.
1) Trabant - The One (Filthy Duke Remix)
Þetta lag er ég búinn að vera að hlusta á núna nýlega, æðislegt lag alveg hreint. Persónulega finnst mér þessi útgáfa mun betri heldur en frumútgáfa Trabant(s). Finnst skemmtilegra bít og finnst einhvernveginn lagið flæða betur.
2) Nada Surf - Popular
Var að heyra þetta um daginn, aftur eftir langa pásu. Skemmtilegt, og byrja ég alltaf að raula með þegar millikaflin kemur.
3) Zookeeper’s Boy - Mew
Tiltörulega nýlegt lag, man ekki hvenar það er gefið út (ef þið viljið finna það, vinsamlegast leitið þá sjálf). Finnst þegar hann segir óskiljanlega skemmtilegasta kaflinn í laginu, einnig er hann með séstaka rödd.
4) Stone Sour - Through the Glass
Hérna er söngvari Slipknot á ferð og hljómsveit, sem kallar sig Stone Sour, hef aldrei fýlað Slipknot en hann er stórgóður söngvari ótrúlegt en satt, samt mikið um endurtekningar í laginu.
5) Requim for a Dream - Summer Overture
Þetta lag er úr myndinni Requim for a Dream, og ég fæ alltaf vænan hroll þegar ég hlusta á þetta lag.
6) Rufus Wainwright - Hallelujah
Þetta lag eru endur af þessum einstakling fyrir myndina Shrek, virkilega fallegur texti og fallegt lag hér á ferð.
7) Coldplay - Beautiful World
Gott að hlusta á þetta lag þegar erfiðir tímar eru hjá manni, þótt að það er nú ekki margir hjá mér. :D
8) David Gray - Sail Away
Finnst þetta lag leyna á sér.
9) Goo Goo Dolls - Iris (City of Angels)
Fallegt lag, og getur maður gleymt sér í því. Viðlagið í því er virkilega grípandi fyrir minn smekk allavega.
10) The Eagles - Hotel California
Fíkniefnalagið hér á ferð, finnst stórskemmtilegt að hlusta á það, sérstaklega seint á kvöldin rétt áður en maður fer að sofa.
Jæja, ekki skal taka mark á röðinni sem þessi lög eru í, því ég er aðeins að nefna lög sem mér finnst góð.
Annars lag dagsins af þessum er Trabant - The One (Filthy Duke Remix)
Labels: Tónlist og Tónleikar


4 Comments:
Núna er komin rúmlega vika! hehe:) Mátt allveg fara að skirfa eitthvað nýtt:D hehe:)
Næstum vikulegt?! Það er mánuður á morgun síðan þú bloggaðir haugurinn þinn!!!
Ég vil fá umfjöllun um pönk og geðveiki, takk kærlega.
-Steinunn
Já! Biggi koma svo, blogga nú;) vil fá slúður... :)
parf ad athuga:)
Post a Comment
<< Home